GLÍMA
arfleifð víkinga og
þjóðaríþrótt Íslendinga
Nýjustu fréttir
Ársskýrsla GLÍ 2025
Hér er ársskýrsla Glímusambandsins árið 2025. Skýrslan er skemmtilega myndskreytt ásamt ýmsum fróðleik um glímuárið 2025. Þar er meðal annars að finna glímuárbók ársins og ársreikning fyrir 2025. Hægt er að skoða skýrsluna hér að neðan: Ársskýrsla GLÍ 2025
Glímuþing 2026
Laugardaginn 6. júní 2026 kl. 14:00, verður Glímuþing haldið í Íþróttamiðstöðinni í Reykjavík. Sambandsaðilar hafa fengið upplýsingar um fjölda þátttakenda sem kemur í þeirra hlut. Dagskrá verður með hefðbundnu sniði.
Íslandsglíman 2026 – Úrslit
115. Íslandsglíman fór fram í íþróttamiðstöðinni í Búðardal í fyrsta sinn í dag. 8 keppendur voru skráðir í karlaflokki og 3 í kvennaflokki. Keppni fór mjög vel fram og sáust margar góðar glímur. Í karlaflokki varð hlutskarpastur Hákon Gunnarsson, ÚÍA en hann lagði alla andstæðinga sína örugglega. Kristín Embla Guðjónsdóttir, ÚÍA, varð efst í kvennaflokki, einnig með fullt hús stiga. Þau eru bæði ríkjandi glímukóngur og glímudrottning og vörðu því titilinn frá fyrra ári.Hákon varð glímukóngur annað árið í röð, en Kristín var að vinna mótið í fimmta sinn. Úrslit voru eftirfarandi: Karlaflokkur1. Hákon Gunnarsson ÚÍA2. Þórður Páll Ólafsson KR3. Gústaf […]
Næstu viðburðir
Hér má sjá næstu viðburði í glímu
Laugardaginn 31. október 2026, fer fram Haustmót GLÍ og sveitaglíma fullorðinna og ungliinga. Samhliða mótinu verða haldnar
æfingabúðir bæði á laugardeginum og sunnudaginn 1. nóvember.
Skráning í mót og æfingabúðir er til 23. október. Senda skal skráningar á mótanefnd, austurey@simnet.is eða á gli@glima.is
Vilt þú styrkja GLÍ?
Glímusambandið yrði þakklátt fyrir að fá styrk frá þér eða þínu fyrirtæki.
Hafðu samband í tölvupósti: gli@glima.is eða í s. 696 3596